Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Tenglar

Teljari

Innskráningar kubbur

23. aprílBerglind Harpa Björnsdóttir

Síðasti dagur vetrar í dag
Snjór

Og sumarið kemur á morgun!
Strönd

Gleðilegt sumar!

BrosBerglind Harpa Björnsdóttir

Að brosa er það næstbesta sem við gerum með vörunum

Hlátur er bros sem springur

Bros

Ó mig aumaBerglind Harpa Björnsdóttir

Bara aðeins að að gera grín að stóru systur minni, henni Sigurveigu.

Pákarnir eru búnir að vera ömurlegir.

Björgvin fékk streptacocca í síðustu viku en varð svo bara hress seinna um daginn þegar hann var búinn að fara til læknis. En auðvitað náði hann að smita mig. Svo ég veiktist á laugardaginn. Gat ekki borðað páskaegg eða páskamat eða neitt á sunnudaginn. Sem sökkaði. Fékk pensilín - sem er ógeð, ekki fá ykkur pensilín nema í neyð, s.s. ekki bara svona uppá gamanið!!

Jæja, Gústi var voða góður og hjúkraði mér þar til ég var næstum því bötnuð, en þá veiktist hann. Þvílíka liðið sem býr hérna. Svo ég reyndi eftir bestu getu að hjúkra honum, en sökum veikinda þá lágum við bara uppi í rúmi og deildum pensilíninu mínu. Voða rómó sko.

Svo sat Sigurveig hjá og hló að þessu öllu saman! Meiri sauðurinn hún Sigurveig!

En nú er mér batnað, eða svo gott sem, en Gústi liggur með hósta og streptacocca.

Gleðilega páska

Enn og afturBerglind Harpa Björnsdóttir

Jæja, á ég að reyna aftur?
Varla að ég þori því miðað við viðbrögðin síðast... Óákveðinn Maður varð bara svekkt!
Allavega.. Sigurveig og Bjúni komu heim á laugardaginn. Sigurveig ætlaði að hafa ótrúlega kósý fyrir okkur þegar ég kom heim úr vinnunni, vídjó, nammi og popp. Hún er svo mikill hughreystir (það er orð!). En það endaði bara þannig að við fórum að sofa. Rosa huggó!

Pabbi og mamma skelltu sér á árshátíði Akureyrarbæjar. Pabbi mætti sem Elvis (það var gull og glamúr þema) en mamma rak hann úr búningnum þegar hún sá hvað fólk starði mikið á þau. Það var víst ekki mikið um að fólk færi eftir þessu þema. Kannski set ég inn mynd af gamla, ef ég læri á það. Sem ég er ekkert viss um... En viti menn! Ég lærði það!
Pabbi

Gústi
kom svo heim á þriðjudagsnóttina, var á einhverju námskeiði og í útvarpinu og eitthvað. Ég á svo frægan kærasta sko!
Allavega, ég sofnaði ekki fyrr en hálf 4 því ég fattaði það, þegar ég ætlaði að fara að sofa, að ég átti eftir að klára verkefni sem ég átti að skila fyrir miðnætti á þriðjudeginum, svo ég dreif mig í því. Svo bara nennti ég ekki að fara að sofa!
Gústi kom svo rétt fyrri 6 og vakti mig. Hafði keypt svona dýrindis páskaegg handa mér. Rosa gott er ég viss um. Fullt af handgerðu konfekti inni í því! Gerist varla betra! Get varla beðið eftir páskunum!!
Girnó
Girnilegt!

Annars er ég að reyna að læra, hef lítið gert af því. Eiginlega of lítið. Þarf að gera ritgerð sem ég á að skila eftir 5-6 daga, er ekki byrjuð! Sem er lélegt!
Efast samt um að ég geri það í kvöld, er að reyna að gera upp við mig hvort ég eigi að fara út eða ekki. Á lítinn pening svo það ætti að vera ekki, en hver veit... Ég á náttúrulega Tequila!

Jæja, farin að reyna að ákveða mig!

Blogga aftur?Berglind Harpa Björnsdóttir

Ætti ég að gera það?

Leiðist eins og er, svo ég ætla að blogga smá. Dunda mér. Hef samt ekkert sérstakt að blogga um...
Smá útskýring á gömlu bloggi fyrir neðan: Ég dundaði mér við að eyða færslum í haust eun tíman. Fannst það svo sniðugt. Það var gaman á sínum tíma þó ég hafi verið skömmuð fyrir það seinna.

Er bara búin að vera að vinna og læra. Eða vinna. Hef ekki lært mikið. Ætti að gera það samt.
Var í starfsnámi á Ólafsfirði í janúar. Sem var fínt. Þarf að gera ritgerð um það. Ekki jafn fínt.
Langt síðan ég hef bloggað, hef lítið að segja. Leiðinlegt blogg.
Er enn að vinna á Hlíð og enn á sjúkraliðabraut. Sem er fjör. Ji, ég er ekki í æfingu að blogga lengur.
Heyrði brandara í vinnunni um daginn, reyndar ekki brandari. Sönn saga. Kall fékk son sinn í heimsókn, sonurinn hafði verið á einhverju ferðalagi. Kallinn spurði hvernig hefði verið og sonurinn sagði "það var rosa gaman. Fullt af gellum þarna!" Þá heyrðst í einni gamalli konu "þá er nú gott að ég var ekki þarna. Því mér finnst gellur vondar." Fannst þetta ógeðslega fyndið! (OMG þetta var svo fyndið!)

Heyrði líka annað í vinnunni um daginn. "Lánið eltir alla en það nær ekki nema sumum." Einn sem sagði þetta við mig, veit ekki af hverju samt. Kannski var ég eitthvað að tuða í honum. Er það ekki það sem maður á að gera við íbúana? Tuða í þeim?

Sigurveig fór til Reykjavíkur á miðvikudaginn. Tók Björgvin með sér. Mamma og pabbi voru áhrifavaldarnir.
S
tungu upp á því að fara og Sigurveig og Bjúni eltu.
Svo við Gústi vorum ein eftir í kotinu.
Er það bara ég eða eru eintóm S hérna fyrir ofan???
Allavega. Svo fór Gústi suður á föstudaginn og ég varð ein eftir. Hafði reyndar Kaylu. Og blómin sem ég fékk frá Gústa. Þau sóma sér vel og eru enn lifandi. Sem er met! Kayla ætlaði að narta í þau um daginn en ég skammaði hana. Hún hefur ekki þorað síðan.
En ég var nú dugleg á meðan ég var ein heima. Tók til og þreif allt hátt og lágt. Allt til að þurfa ekki að læra sko!
Svo keypti pabbi páskaeggjamót handa mér í borginni. Það verða bara heimagerð páskaegg í ár á þessum bæ.

Sveimér þá. Ég held þetta sé versta blogg sögunnar! Vel skreytt samt.
Hálf skammast mín fyrir að hafa ákveðið að gera þetta!
Góða nótt.

Góðan daginn!Berglind Harpa Björnsdóttir

Var að koma heim úr vinnu og er svona líka eitur hress! Eða þannig séð... Var svosem ekki mikið að gera í vinnunni minni... Ég sofnaði ekkert *Til Hamingju Berglind!* Hlæjandi

En annars var nú ástæða fyrir því að ég ákvað að blogga í dag.... Þær eru þrífættar,

1) Ég er að bíða eftir að Sigurveig vakni svo við getum farið til Ólafsfjarðar

2) Langaði að segja ykkur frá mjög klaufalegu atviki sem ég lenti í um daginn. Ég og Björgvin Máni vorum á leið í búðina að kaupa í matinn, hann vildi endilega að mamma myndi skutla okkur (mamma var að fara til Ólafsfjarðar) svo við settumst upp í bílinn og keyrðum alla þessa... 10 metra! Svo vildi ekki betur til en svo að við stigum út úr bílnum og röltum eftir bílaplaninu (það var EKKERT á planinu, btw!) og Björgvin hrasaði svona og datt á götuna og þar sem var að leiða hann þá hrundi ég auðvitað líka á hausinn, rúllaði einhvernvegin á planinu og lenti ofan á honum! Honum brá nú svolítið, og mér líka ef ég á að segja eins og er! Svo drösluðum við okkur á fætur og þá sá ég að ég hafði dottið úr skónum! (Þvílíkt fall! Hehe ;) Einhver útlendingur rétti mér skóna mína og ég klæddi mig og við Björgvin röltum alblóðug inn í búðina... Svo að afrakstur þessarar búðarferðar var: Þrír slasaðir puttar, bólgið og blóðugt hné og sært egó. Á meðan Björgvin slapp með skrámu á handarbakinu! Heldur betur skrautlegt!
Boðskapur þessarar sögu: Það borgar sig ekki að keyra stuttar vegalengdir!

3) Ég vaknaði hlæjandi í gær! Án spaugs! Mig dreymdi að við Sara sætum á kaffihúsi og það var einhver stelpa þarna sem var alltaf að gefa Söru auga. Ég ákvað að vera "góð" við Söru og rölta í burtu svo þær myndu nú fá tækifæri til að kynnast (við Sara erum eins mikið anti-samkynhneigðar og hægt er!) og svo labbaði ég í burtu og hló. Þá vaknaði ég - í miðjum hlátri! Aldrei skeð fyrir mig áður! Mjög kjánalegt! Hissa Hehehe, er búin að hlæja að þessu í alla nótt!

Svo reyndar bætist eitt atriði við bloggið mitt, sem gerir það að verkum að það verður ferfætt en ekki þrífætt, (ég held þessi orð séu örugglega til - held ég hafi séð þetta í Friends), en mamma og pabbi buðu okkur í grill í kvöld svo það er eins gott að hún systir mín fari að hunskast á lappir svo við getum farið, ég vil geta lagt mig!
Svo ætla ég nottla að kíkja á Hönnu Stellu sem liggur í þynnku heima hjá sér, mjög fyndin saga það! Hahahahaha Glottandi
OG (það er alltaf að bætast við þetta blogg hjá mér) strákurinn Láru, Hafsteinn Ingi, varð eins árs 18. ágúst - til hamingju með það !! Hlæjandi

Jæja, ég er farin að draga Sigurveigu fram úr!

Kv. Berglind Bloggar

Kominn ágúst já...Berglind Harpa Björnsdóttir

Jæja, kominn ágúst segiði... það er ekkert svo langt síðan ég bloggaði síðast... Enda er ekkert svaðalegt búið að ske.. Já, ég lifi geðveikt spennandi lífi!!! Þögull sem gröfin

Er enn að vinna í næturvinnu, enn að skúra hjá ISS, enn veik (síðan í fyrradag), enn úti á Ólafsfirði (síðan í gær)... Á eldri mömmu en ég átti þegar ég bloggaði síðast, því hún er orðin 45 ára konan, átti afmæli á laugardaginn. Svo ég kom ekki að ástæðulausu til Ólafsfjarðar.. Það voru kökur... og heitt súkkulaði... mmmm.....
Ég er komin með hleðslutæki í símann minn. Pabbi fór til Póllands á miðvikudaginn að sækja skipið og kom í gær, keypti handa mér hleðslutæki í fríhöfninni. Jibbí gaman!! Þarf ekki lengur að fá lánuð hleðslutæki útum allan bæ eða rúnta til að hlaða símann minn, því ég á alveg bílhleðslutæki.. Og núna er ég líka komin með venjulegt! Brosandi

Verslunarmannahelgin var um daginn, næstum tvær vikur síðan... Hún tókst bara vel... Var að vinna á fimmtudaginn og föstudaginn.. Djamm á laugardaginn og sunnudaginn... Skellti mér á Greifana á laugardaginn með Klöru og Helgu... Þar eignaðist ég stalker (til hamingju Berglind!!)... Heyrði aðeins í Holla (minnir mig) og svo enduðum við djammið á að fara á Subway, sem var bara mjög gott! Sumir (Klara) lifðu á Subway þessa helgi.. Enda er það bara mjög gott að borða þarna!

Á sunnudeginum fórum við Sara á Kung Fu... mjöööööög fámennt þar á bæ.. enduðum á að fá okkur Hlölla og svo bara heim um 4... Ropaði beikonbragði allan sunnudaginn, EKKI gott! Öskrandi Samt var Hlöllinn ágætur, þ.e. fyrir utan beikonið...

Sótti Eið á flugvöllinn í gær, mætti þess vegna of seint að skúra í Hagkaup, en það gerði ekki mikið til held ég... Allavega náði ég að skúra án allra vandkvæða..

Svo skelltum við Eiður okkur á Strikið að borða. Ég fékk mér súpu.. Hef verið ansi dugleg að fara þangað undanfarið.. Aðallega með Örnu, held að þjónninn þarna sé farinn að kannast við mig... Ekkert sorglegt er það??
Ég skutlaði Eið síðan í rútuna og hann fór til Ólafsfjarðar þar sem Kleifabergið beið hans og svo sigldu þeir út á sjó... Gaman að því!

Sara fór suður í gær, flytur út eftir 9 daga!! Og ég náði ekki að hitta hana neitt áður en hún fór! Samt höfðum við alveg tíma til að hittast... Komum okkur einhvernvegin ekki í það... Eða ég svaf alla dagana, var að vinna allar nætur... Skamm Kolla, að láta mig vinna! En ég hringi bara í hana, áður en hún fer, í staðinn. Brosandi

Er loksins komin með Bluetooth í tölvuna mína, svo ég get tæmt símann minn af öllum þessum myndum sem ég á, og sett lög í hann í staðinn - kominn tími til!!
Vantar bara headsettið mitt svo ég geti hlustað á hann þegar ég hjóla í vinnuna... Týndi því þegar við fluttum... Eins og hleðslutækinu mínu... Óákveðinn Furðulegt.. Finn það pottþétt eftir nokkra mánuði þar sem það liggur bara á borðinu fyrir framan mig.. Það hefur nú gerst nokkrum sinnum.. Týndi einu sinni þrírkossinum mínum í SUNDLAUGINNI og fann hann svo ofan í skúffu HEIMA! Ótrúlegt.... hehe Glottandi En þetta er nú samt ekki djók..

Það styttist í að Arna flytji suður.. fer í vikunni, þarf víst að byrja í skóla stelpan.. En ekki ég, því ég fer ekki í skóla strax... Er ekki einusinni búin að ákveða hvort ég fer í fjarnám, þar sem ég var of gömul til að fara í FB! Gráta

En þetta er nú orðið ansi langt blogg og ég ætla að fá mér eitthvað að borða áður en Nágrannar byrja... Svo ég segi bara bless í bili..

Kv. Berglind Bloggar

Kominn ágúst já...Berglind Harpa Björnsdóttir

Jæja, kominn ágúst segiði... það er ekkert svo langt síðan ég bloggaði síðast... Enda er ekkert svaðalegt búið að ske.. Já, ég lifi geðveikt spennandi lífi!!! Þögull sem gröfin

Er enn að vinna í næturvinnu, enn að skúra hjá ISS, enn veik (síðan í fyrradag), enn úti á Ólafsfirði (síðan í gær)... Á eldri mömmu en ég átti þegar ég bloggaði síðast, því hún er orðin 45 ára konan, átti afmæli á laugardaginn. Svo ég kom ekki að ástæðulausu til Ólafsfjarðar.. Það voru kökur... og heitt súkkulaði... mmmm.....
Ég er komin með hleðslutæki í símann minn. Pabbi fór til Póllands á miðvikudaginn að sækja skipið og kom í gær, keypti handa mér hleðslutæki í fríhöfninni. Jibbí gaman!! Þarf ekki lengur að fá lánuð hleðslutæki útum allan bæ eða rúnta til að hlaða símann minn, því ég á alveg bílhleðslutæki.. Brosandi

Verslunarmannahelgin var um daginn, næstum tvær vikur síðan... Hún tókst bara vel... Var að vinna á fimmtudaginn og föstudaginn.. Djamm á laugardaginn og sunnudaginn... Skellti mér á Greifana á laugardaginn með Klöru og Helgu... Þar eignaðist ég stalker (til hamingju Berglind!!)... Heyrði aðeins í Holla (minnir mig) og svo enduðum við djammið á að fara á Subway, sem var bara mjög gott! Sumir (Klara) lifðu á Subway þessa helgi.. Enda er það bara mjög gott að borða þarna!

Á sunnudeginum fórum við Sara á Kung Fu... mjöööööög fámennt þar á bæ.. enduðum á að fá okkur Hlölla og svo bara heim um 4... Ropaði beikonbragði allan sunnudaginn, EKKI gott! Öskrandi Samt var Hlöllinn ágætur, þ.e. fyrir utan beikonið...

Sótti Eið á flugvöllinn í gær, mætti þess vegna of seint að skúra í Hagkaup, en það gerði ekki mikið til held ég... Allavega náði ég að skúra án allra vandkvæða..

Svo skelltum við Eiður okkur á Strikið að borða. Ég fékk mér súpu.. Hef verið ansi dugleg að fara þangað undanfarið.. Aðallega með Örnu, held að þjónninn þarna sé farinn að kannast við mig... Ekkert sorglegt er það??
Ég skutlaði Eið síðan í rútuna og hann fór til Ólafsfjarðar þar sem Kleifabergið beið hans og svo sigldu þeir út á sjó... Gaman að því!

Sara fór suður í gær, flytur út eftir 9 daga!! Og ég náði ekki að hitta hana neitt áður en hún fór! Samt höfðum við alveg tíma til að hittast... Komum okkur einhvernvegin ekki í það... Eða ég svaf alla dagana, var að vinna allar nætur... Skamm Kolla, að láta mig vinna! En ég hringi bara í hana, áður en hún fer, í staðinn. Brosandi

Er loksins komin með Bluetooth í tölvuna mína, svo ég get tæmt símann minn af öllum þessum myndum sem ég á, og sett lög í hann í staðinn - kominn tími til!!
Vantar bara headsettið mitt svo ég geti hlustað á hann þegar ég hjóla í vinnuna... Týndi því þegar við fluttum... Eins og hleðslutækinu mínu... Óákveðinn Furðulegt.. Finn það pottþétt eftir nokkra mánuði þar sem það liggur bara á borðinu fyrir framan mig.. Það hefur nú gerst nokkrum sinnum.. Týndi einu sinni þrírkossinum mínum í SUNDLAUGINNI og fann hann svo ofan í skúffu HEIMA! Ótrúlegt.... hehe Glottandi En þetta er nú samt ekki djók..

Það styttist í að Arna flytji suður.. fer í vikunni, þarf víst að byrja í skóla stelpan.. En ekki ég, því ég fer ekki í skóla strax... Er ekki einusinni búin að ákveða hvort ég fer í fjarnám, þar sem ég var of gömul til að fara í FB! Gráta

En þetta er nú orðið ansi langt blogg og ég ætla að fá mér eitthvað að borða áður en Nágrannar byrja... Svo ég segi bara bless í bili..

Kv. Berglind Bloggar

Talandi um græðgi...Berglind Harpa Björnsdóttir

Sá í Mogganum í dag mynd af urriða sem var búið að rista upp, og innan í  maganum á honum voru 4 litlir andarungar! Verí næs!Þögull sem gröfin

Er bara að vinna... Frí eftir þessa nótt.. EÐa frí.. er að byrja í annarri vinnu, skúri skúr hjá ISS.. Geðveikt! Hehe...

Allavega, ætlaði bara að láta fólk vita að urriðar eru gráðugir, heyrst hefur meirasegjan að þeir gráðugustu hafi borðað litla fermingardrengi.. Já, þetta las ég í Mogganum áðan!

Kv. Berglind Bloggar

Helgin búin ;)Berglind Harpa Björnsdóttir

Jæja, þá er ég komin aftur heim af þungarokks hátíðinni. Þetta var bara nokkuð skemmtilegt verð ég að segja! Ég auðvitað fór ekki á tónleikana, enda hefði ég ekki skemmt mér þar... hehe Þögull sem gröfin
En semsagt, svona er helgin í hnotskurn:

Kl. 13.30 löguðm við Katla af stað inneftir til þess að fara í plokkun pg litun og versla tjald og allskyns útilegudót. Síðan sóttum við þá sem fengu með okkur skutl og lögðum af stað austur um 6 leytið.
Vorum svoltið lengi, eða 4 tíma, og sumir voru svoltið "ágætir" þegar við komum og sumir voru kenndir við 50% íbúa á Neskaupsstað en það er bara gaman Svalur

Það var svoltið djamm á tjaldsvæðinu á föstudeginum, en við fórum samt þannig séð snemma í háttinn þá, og vöknuðum snemma á laugardeginum, og við Katla keyrðum yfir á Eskifjörð og fórum í sturtu, því það var ekki opin sundlaug á Neskaupsstað!! Bara skrýtið! Hissa En ég rakst á Ingu Hrund þar... bjóst ekki við að hitta hana þarna! En það var bara gaman að sjá hana eftir öll þessi ár Brosandi

En á hádegi byrjuðu tónleikarnir og þá fór ég að einhverfast. Fór á rúntinn, svaf, rúntaði meira, svaf ennþá meira, og fór svo aftur á rúntinn.
Síðan loksins voru tónleikarnir búnir og þá hringdi Katla og sagði að ég væri velkomin í Egilsbúð. Loksins! Þetta voru langir 12 tímar sem ég þurfti að vera ein!! Þögull sem gröfin
Þá byrjaði partýið... Ég hélt þetta yrði partý með metal tónlist og allir í þunglyndiskasti úti í horni... en þetta var bara alls ekki svoleiðis! Hehehe, rokkarar að dansa við diskó og Pál Óskar. Annar hver maður ber að ofan, flengjandi hvern annan, hömpandi hvor á öðrum og kyssandi hvern annan! Án spaugs, ég hef aldrei séð svona marga stráka kyssa hvorn annan!! Hissa Svo fékk ég lap dance og sá sýningu uppi á billjardborði og allskyns svoleiðis skemmtilegt. Svaf svo í bíl því tjaldið mitt var fullt, og vaknaði í hita kófi daginn eftir. Lét renna af mér og svo héldum við heim á leið.

Svo að ég skemmti mér ærlega þarna fyrir austan og held ég bjóðist bara til að skutla Kötlu aftur á næsta ári Hlæjandi

Jæja, Klara er að bíða eftir mér svo ég ætla að þjóta,

Kv. Berglind Bloggar
Síða 1 af 2

Fólk sem bloggar...

SmáFólk...

Leit

Gagnasafn